Enski boltinn

Guardiola: Spiluðum ekki nógu hratt

Dagur Lárusson skrifar
Guardiola í dag
Guardiola í dag Vísir/getty
Pep Guardiola var ekki nógu sáttur með fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum í dag en var þó ánægður með lokatölur leiksins.

Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir heimaliðið og var Guardiola á því að liðið hans hafi ekki spilað nógu hratt.

„Í fyrri hálfleiknum vorum við ekki að spila nægilega hratt og þess vegna vorum við að lenda í vandræðum.“

„Síðasta korterið af seinni hálfleiknum viru þó farnir að spila vel og þá komu mörkin. Markið hans Sané var svo mikilvægt, fyrsta snertingin hans í markinu var frábær. Hlaupin sem hann kemur með eru alltaf rétt tímasett.“

Eftir leiki dagsins situr Manchester City í 1.sæti deildarinnar með jafn mörg stig og grannar sínir í United en þó með betri markatölu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×