Handbolti

Kristianstad með svekkjandi tap gegn Barcelona

Ólafur og félagar töpuðu í dag
Ólafur og félagar töpuðu í dag Vísir/getty
Gunnar Steinn Jónsson, Ólafur Andrés Guðmundsson og Arnar Freyr Arnarson og félagar í Kristianstad mættu spænska stórliðinu Barcelona í meistaradeildinni í dag.

Fyrir leikinn var Kristanstad í 6.sæti A-riðils með 1 stig eftir jafntefli í fyrsta leik. Barcelona var einnig með 1 stig en þó tveimur sætum ofar.

Það var spænska liðið sem að var með forystuna oftast í þessum þó jafna leik en þegar 44. mínútur voru búnar var staðan þó orðin jöfn 22-22 og því stefndi í gríðarlega spennandi lokamínútur.

Kristianstad komst yfir 25-24 á 51.mínútu en Barcelona jafnaði strax aftur. Eftir það komst Kristianstad í tveggja marka forystu þegar aðeins tvær mínútur voru eftir en þá tóku Börsungar við sér og skoruðu fjögur mörk í röð og tryggðu sér sigurinn, 31-29.

Virkilega svekkjandi tap fyrir Kristianstad sem situr ennþá í 6.sæti með aðeins 1 stig á meðan að Barcelona er komið upp í 3.sæti með 3 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×