Matur

Hafsteinn Ólafsson er kokkur ársins 2017

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Garðar Kári, Hafsteinn og Víðir fagna hér góðum árangri
Garðar Kári, Hafsteinn og Víðir fagna hér góðum árangri Mynd/Aðsend
Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður á Sumac Grill + Drinks hlaut titilinn Kokkur ársins 2017 eftir æsispennandi keppninni sem fram fór í Hörpu í gær.

Garðar Kári Garðarsson matreiðslumaður hjá Deplar Farm/Strikinu var í öðru sæti og Víðir Erlingsson matreiðslumaður hjá Bláa lóninu lenti í því þriðja.

Um val sigurvegarans sá fjölskipuð 11 manna dómnefnd. Yfirdómari var Krister Dahl frá Svíþjóð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra krýndi Kokk ársins í lok kvölds.


Tengdar fréttir

Velja kokk ársins

Klúbbur matreiðslumeistara velur Kokk ársins 2017 um helgina. Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu laugardaginn 23.sept.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×