Tíska og hönnun

Allir í sínu fínasta pússi á þing­setningar­at­höfninni

Guðný Hrönn skrifar
Fólk var flott í tauinu í gær við þingsetningarathöfnina.
Fólk var flott í tauinu í gær við þingsetningarathöfnina. Vísir/Anton og Vilhelm
Eins og við var að búast voru allir flottir í tauinu á þingsetningarathöfninni á þriðjudaginn. Ljósmyndarar Fréttablaðsins fylgdust með þegar forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn mættu til Alþingis í sínu fínasta pússi.

Óttarr Proppé klæddist fötum frá Kormáki & Skildi og Þorgerður Katrín samfestingi úr smiðju Steinunnar Sigurðardóttur. Benedikt og Kristján Þór héldu sig við blá jakkaföt.Vísir/VILHELM
Jakkinn sem Björt Ólafsdóttir klæddist kemur frá Stellu McCartney.
Katrín Jakobsdóttir klæddist kjól frá Hildi Yeoman.Vísir/Anton Brink
Hildur Sverrisdóttir klæddist fögrum kjól frá BIRNU og Jóna Sólveig Elínardóttir klæddist kjól frá Laura Ashley og skóm frá billi bi.Vísir/Vilhelm
Páll Magnússon klæddist jakkafötum frá Kultur Menn.
Kolbeinn Óttarsson Proppé var svalur í fötum frá Suitup Reykjavík.Vísir/Anton Brink
Þórunn Egilsdóttir klæddist glæsilegum þjóðbúning líkt og í fyrra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×