Menning

Hamingjusöm smáblóm af íslenskri fold

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
“Ég ákvað að leyfa því að koma á strigann sem vildi koma,” segir listakonan Sigríður Rut.
“Ég ákvað að leyfa því að koma á strigann sem vildi koma,” segir listakonan Sigríður Rut.
Sigríður Rut Hreinsdóttir er með málverkasýningu í Grafíksalnum að Tryggvagötu 17, bryggju­megin. Hún nefnir hana Smámyndir, enda eru öll málverkin 20x20 sentimetrar að stærð.

 „Ég hef áður aðallega málað stór verk sem tekur mig langan tíma að gera en mig langaði að breyta til og gera litlar myndir og ákvað að leyfa því sem vildi koma á strigann að koma. Þetta er útkoman,“ segir hún og kveðst hafa unnið myndirnar á árunum 2011 til 2017. Þær hafa ekki verið til sýnis áður.





Íslensk ?bláklukka í nýju ljósi.
Sigríður Rut notar eingöngu olíuliti. Myndefnið sækir hún aðallega í flóru Íslands. „Flest mótífin eru náttúrutengd, hamingjusöm lauf og smáblóm,“ segir hún og nefnir blöð fífilsins sem dæmi um viðfangsefni.

Smámyndir er sjötta einkasýning Sigríðar Rutar sem einnig hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Hún er opin til 24. september frá fimmtudögum til sunnudags, frá klukkan 14 til 18.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×