Bílar

EQA rafmagnsbíll Benz frumsýndur í Frankfurt

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz EQA hugmyndabíllinn.
Mercedes Benz EQA hugmyndabíllinn.
Mercedes-Benz kynnti hugmyndabíl á bílasýningunni í Frankfurt í gær sem ber nafnið EQA og er hreinn rafbíll sem kemst 400 km á fullri hleðslu. Bíllinn er framúrstefnulegur í hönnun og 5 dyra stallbakur. EQA er með tvo rafmótora sem framleiða samtals 200 kW af hreinu afli til hjólanna. Mercedes-Benz kynnti vörumerkið EQ á bílasýningunni í París í fyrrahaust en það nær yfir alla rafbíla þýska lúxusbílaframleiðandans.

Mercedes-Benz EQA hugmyndabíllinn mun koma á markað árið 2020 og verður þá annar bíllinn í röðinni af 10 hreinum rafbílum sem Mercedes-Benz mun kynna á næstu 5 árum. EQA fylgir í fótspor fjórhjóladrifna sportjeppans Generation EQ sem kynntur var í París í fyrra og kemur á markað árið 2019. Plug-in Hybrid bílar Mercedes-Benz verða einnig framleiddir undir merkjum EQ.

Mercedes-Benz hefur ákveðið að fjárfesta af miklum þunga í rafbílum og rafhlöðutækni. Í byggingu er 55 milljarða króna risarafhlöðuverksmiðja Mercedes-Benz í Þýskalandi. Þá er unnið hörðum höndum að því að lækka verð á rafhlöðum enn frekar. Talið er að framleiðslukostnaðurinn á rafhlöðum verði innan tveggja ára aðeins 10% af því sem hann var árið 2012.






×