Glamour

Brot af því besta frá New York

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tískuvikan í New York er nú afstaðin þar sem hönnuðir sýndu okkur vor- og sumartískuna 2018.

Hönnuðir lögðu mikið upp úr skemmtilegum sýningum þar sem fjölbreytnin var mikil, bæði í fyrirsætuvali og litríkum klæðum.

Hér er brot af því besta að mati Glamour frá tískupöllunum í New York.

Tom Ford

Það er svo sannarlega hægt að bjóða Tom Ford velkominn aftur eftir þessa sýningu hans. Leður, stórar axlir, klæðaskerasniðin jakkaföt á dömur í bland við skæra liti, bláan og bleikan.

Calvin Klein

Ein besta sýning tískuvikunnar í New York. Silkiklæddir kúrekar Raf Simons fyrir Calvin Klein stálu senunni á sýningunni og á sýningunni má finna fjölmörg trend sem án efa verða áberandi næsta vor. Silkiskyrtur, beinar skálmar, litadýrð og kögur.

Victoria Beckham

Drottning svíkur engan. Einfalt og stílhreint að venju þar sem þægindin eru í fyrirrúmi. Svart og hvítur litur eru grunnlitirnir en svo læddist með rauður. Þannig að rauður verður áfram áberandi næsta sumar.

Marc Jacobs

Fatahönnuðurinn var rúsínan í pylsuendanum á tískuvikunni í New York og gerði það að sjálfsögðu með stæl. Höfuðklútar og litrík klæði. Pallíettur og stórar töskur. Í risastórum sal gengur fyrirsæturnar um í síðkjólum eins og alvöru dívur við dramatíska tóna.

Anna Sui

Er hippatíminn mættur aftur? Anna Sui er á þeirri skoðun eftir fallega sýningu þar sem heklaðar flíkur voru í aðalhlutverki. Víð og flæðandi snið og fallegt efni sem gerðu sýninguna mjög bóhem í alla staði.

Ralph Lauren

Ef frú Beckham er drottningin þá Ralph Lauren kóngurinn en hann bauð gestum sínum upp á sýningu í bílskúrnum sínum þar sem fyrirsæturnar þrömmuðu um á milli glæsikerra í einkaeigu fatahönnuðarins en innblástur flíkanna var fengin þaðan. Rautt lakk, tjull og klæðaskerasniðnar flíkur í köflóttu. Glæsilegt í alla staði.






×