Formúla 1

Sebastian Vettel á ráspól í Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel var fljótastur í dag.
Sebastian Vettel var fljótastur í dag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari verður á ráspól í Singapúr kappakstrinum í Formúlu 1 sem fram fer á morgun. Max Verstappen á Red Bull varð annar og liðsfélagi hans Daniel Ricciardo þriðji.

Ráspóllinn í Singapúr er afar mikilvægur í síðustu níu keppnum hefur ökumaðurinn á ráspól unnið sjö sinnum. Brautin er hlykkjótt og þröng og því erfitt að taka fram úr.

Red Bull ökumenn höfðu verið hraðastir á öllum þremur æfingunum. Daniel Ricciardo á fyrstu tveimur og Max Verstappen á þeirri þriðju. Það var því við því að búast að þeir yrðu sterkir í tímatökunni. Þegar á reyndi gat Ferrari bíllinn einfaldlega meira og Vettel var fljótastur.

Fyrsta lota

Felipe Massa sleikti vegginn með Williams bíl sínum og braut með því felgu hægra megin að aftan. Hann kom inn á þjónustusvæðið til að fá nýtt dekk og láta meta skemmdirnar á bílnum.

Þeir sem duttu út í fyrstu lotu voru: Williams og Sauber ökumennirnir auk Kevin Magnussen á Haas bílnum.

Verstappen á Red Bull var fljótastur í lotunni, Ricciardo annar og Fernando Alonso á McLaren fann taktinn og var þriðji.

Önnur lota

Eftir fyrstu atlögu fremstun manna í lotunni var Verstappen fremstur og Vettel annar, Ricciardo þriðji og Raikkonen fjórði. Raikkonen varð þriðji og Vettel fjórði þegar upp var staðið í annarri lotu. Ricciardo hafði bætt sig og var orðinn annar.

Force India ökumennirnir, Romain Grosjean á Haas, Daniil Kvyat á Toro Rosso og Jolyon Palmer á Renault féllu út í annarri umferð.

Max Verstappen átti möguleika en gat ekki svarað Vettel.Vísir/Getty
Þriðja lota

Eftir fyrstu tilraun fremstu manna var Vettel fljótastur. Verstappen hafði verið fljótastur í örfáar sekúndur þegar Vettel kom yfir línuna. Vettel þurrkaði brosin af Red Bull liðinu með afskaplega góðum hring. Vettel var 0,145 sekúndum hraðari en Verstappen.

Raikkonen var fyrstur af stað í seinni tilraun fremstu manna í þriðju lotunni. Aðrir fylgdu honum fast á eftir. Enginn gat skákað Vettel sem bætti enn frekar í á lokametrunum. Mikilvægur ráspóll fyrir Vettel í baráttunni við Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna enda erfitt að komast fram úr í Singapúr. Hamilton endaði fimmti í tímatökunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×