Íslenski boltinn

Bjarni Ólafur: Þessi titill er sætari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarni Ólafur Eiríksson hefur verið frábær í sumar en hér er hann í leiknum í kvöld.
Bjarni Ólafur Eiríksson hefur verið frábær í sumar en hér er hann í leiknum í kvöld. Vísir/Eyþór
„Persónulega er þessi titil sætari þó ég vilji ekkert fara nánar út í það,“ segir Bjarni Ólafur Eiríksson, leikmaður Vals, sem varð Íslandsmeistari í kvöld með Val. Hann var í liðinu fyrir tíu árum sem varð Íslandsmeistari. Þá skoraði Bjarni Ólafur í lokaleiknum og hann skoraði aftur í kvöld.

Valsmenn unnu Fjölni 4-1 í kvöld og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn.

„Þetta er algjörlega frábært. Þetta er besta lið sem ég hef verið í. Við höfum verið að byggja þetta lið upp síðustu ár og höfum verið að uppskera.“

Bjarni segir að ekki sé hægt að benda á einhvern einn hlut af hverju liðið er meistari.

„Þetta eru ótrúlega margir litlir hlutir sem þurfa að smella saman. Það er búið að vinna jafnt og þétt í þessu síðustu ár.“

Bjarni Ólafur á eitt ár eftir af samningi sínum við Valsmenn.

„Ég stefni á að klára það ár.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×