Erlent

Segja að þvinganir muni ekki stöðva þá

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, og hershöfðingjar hans.
Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, og hershöfðingjar hans. Vísir/AFP
Utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu segir að refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir muni ekki stöðva eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlanir ríkisins. Þessi í stað muni slíkar aðgerðir hraða áætlunum Norður-Kóreu. Þá sakar ráðuneytið Bandaríkin um að þvinga önnur ríki til að taka þátt í refsiaðgerðum með því að hóta kjarnorkustríði á Kóreuskaganum.

Í tilkynningu á vef KCNA, opinberri fréttaveitu ríkisins, segir ráðuneytið að refsiaðgerðirnar gegn Norður-Kóreu beinist gegn borgurum ríkisins og þær séu „grimmar og siðlausar“ aðgerðir sem ætlað sé að „útrýma“ íbúum Norður-Kóreu.



„Kjánalegur draumur“

„Bandaríkin eru að kyrkja og kæfa ríki og brjóta vilja þess á bak aftur til að koma vilja sínum yfir það. Er það friðsöm og pólitísk lausn?“ segir á vef KCNA.

Enn fremur segir ráðuneytið að Bandaríkin hóti því að beita hernaði og þar með kjarnorkustríði á Kóreuskaganum til að þvinga þjóðir heimsins til að taka þátt í refsiaðgerðunum.

„Það er kjánalegur draumur að vona að aðgerðirnar virki gegn Norður-Kóreu þegar þær hafa ekki stöðvað tilraunir ríkisins til að verða kjarnorkuveldi og byggja upp efnahagsveldi í rúma hálfa öld. Frekari aðgerðir Bandaríkjanna og leppríkja þeirra til að beita Norður-Kóreu þvingunum mun einungis auka hraða okkar að því markmiði að verða kjarnorkuveldi.“

Norður-Kórea rædd í þaula

Fastlega má búast við því að Norður-Kórea verði mikið á milli tannanna á leiðtogum heimsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem hófst í dag og verður út vikuna. Markmið refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna er að koma í veg fyrir að Norður-Kórea verði sér út um eldsneyti og tekjur sem nýtast í vopnaáætlanir ríkisins.

Ríkið hefur sprengt sex kjarnorkusprengjur á undanförnum árum og skotið fjölda eldflauga á loft á síðustu mánuðum. Allt í trássi við ályktanir Sameinuðu þjóðanna og öryggisráðið. Yfirlýst markmið Norður-Kóreu er að þróa kjarnorkuvopn og eldflaugar sem geta borið slík vopn til meginlands Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

Lengsta eldflaugaskotið hingað til

Norður-Kórea skaut eldflaug yfir norðurhluta Japan einunguis nokkrum klukkustundum eftir að hafa hótað því að "sökkva“ Japan með kjarnorkuvopnum.

Vara Norður-Kóreu enn einu sinni við eyðileggingu

Helstu ráðgjafar Donald Trump fóru fram á að Norður-Kóreumenn létu af eldflauga- og kjarnorkuvopnatilraunum sínum og hættu að hóta Bandaríkjunum eða bandamönnum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×