Innlent

„Fagnaðarefni fyrir alla Íslendinga“

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Sigur fyrir íslenska náttúru og umhverfi, segja andstæðingar fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga eftir að ljóst er að ekki verður af byggingu hennar. Í gær varð ljóst að fyrirtækinu tækist ekki að útvega fjármögnun til framkvæmdarinnar, en áætlað var að yfir 400 störf myndu skapast í verksmiðjunni. 

Sjá einnig: Samningum um lóð undir sólarkísilver á Grundartanga rift

Undirbúningur fyrir byggingu verksmiðjunnar, sem var á vegum bandaríska fyrirtækisins Silicor Materials, hefur staðið yfir um nokkurra ára skeið. Til stóð að starfsemin yrði gríðarlega umfangsmikil með framleiðslugetu upp á um 19 þúsund tonn á ári, auk þess sem áætlað var að nokkur hundruð störf yrðu til með henni. Framkvæmdin hefur þó ekki verið hnökralaus, en samtök ýmissa hagsmunaaðila í Hvalfirði hafa mótmælt fyrirætluninni harðlega og telja að líta eigi til umhverfisvænni kosta á svæðinu. Þá vann hópur slíkra hagsmunaaðila enn fremur dómsmál í héraðsdómi Reykjavíkur í sumar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin skildi gangast undir umhverfismat, þvert á það sem ákveðið hafði verið. Skúli Mogensen, landeigandi í Hvalfirði hefur haft sig talsvert í frammi um málið og segir það fagnaðarefni fyrir alla íslensku þjóðina að ekki verði af byggingu verksmiðjunnar. 

Silicor Materials hafði gert samning við Faxaflóahafnir um lóð og hafnaraðstöðu. Hafnarstjóri segir að nú verði horft til annarra stórra atvinnutækifæra í ljósi þess að ekki verði af framkvæmdinni. Þannig sé litið til verkefna á sviði framleiðslu og flutninga sem geti skapað talsverðan fjölda starfa. Skúli bendir aftur á móti á að atvinnuleysi á Íslandi sé lítið og raunar sé verið að flytja vinnuafl til landsins í talsverðum mæli. Af þessu leiði að rétt sé að horfa til náttúruverndar umfram hugsanlegrar starfsmannaveltu þegar kemur að uppbyggingu á svæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×