Sport

Fleiri veðjuðu á MayMac en Super Bowl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fleiri höfðu trú á Conor en Tom Brady í Super Bowl.
Fleiri höfðu trú á Conor en Tom Brady í Super Bowl. vísir/getty
Veðbankar í Las Vegas slógu alls konar met í kringum bardaga Conor McGregor og Floyd Mayweather.

Ótrúlegur fjöldi veðjaði á sigur hjá Conor í bardaganum og fleiri veðjuðu á hans sigur en á sigur New England Patriots í síðasta Super Bowl. Það er magnað.

Í heildina veðjuðu miklu fleiri á bardaga MayMac en á Super Bowl.

„Það hafa aldrei svona margir veðjað á stakan viðburð áður. Þetta var sögulegt,“ sagði talsmaður eins veðbanka en þeir eru þegar farnir að bjóða upp á veðmál um hvort Conor og Mayweather berjist aftur.

Ef Conor hefði unnið þá hefðu veðbankarnir fengið að finna fyrir því og þeir fögnuðu því sigri Mayweather.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×