Leik lokið: Stoke 1 - 0 Arsenal | Nýji maðurinn skoraði fyrir Stoke

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jesé skoraði sigurmark Stoke í dag.
Jesé skoraði sigurmark Stoke í dag. vísir/getty
Arsenal tapaði 1-0 fyrir Stoke á útivelli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Jese, nýji Spánverjinn í liði Stoke, skoraði sigurmarkið á 47. mínútu eftir undirbúning frá Saido Berahino.

Alexandre Lacazette setti boltann í netið fyrir Arsenal á 72. mínútu, en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Allan kraft vantaði í lið Arsenal í dag og voru þeir ekki nógu skapandi fram á við til að ná að setja mark á leikinn í dag. Arsenal er því komið með 4 stig í deildinni eftir tvo leiki, líkt og Liverpool.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira