Viðskipti innlent

Skora á yfirvöld að loka verksmiðju United Silicon

Stefán Ó. Jónsson skrifar
iklir erfiðleikar hafa einkennt rekstur verksmiðju United Silicon
iklir erfiðleikar hafa einkennt rekstur verksmiðju United Silicon Vísir/Anton
Stjórn samtakanna Andstæðingar stóriðju í Helguvík skorar á yfirvöld að stöðva rekstur verksmiðju Untied Silicon í Helguvík. Segir hún að hluti íbúa Reykjanesbæjar hafi „ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum“ vegna mengunar sem gengur þvert á forsendur starfleyfis verksmiðjunnar. „Það sé með öllu ólíandi“ eins og það er orðað í tilkynningu frá samtökunum.

Ítrekað hafa borist fregnir frá Suðurnesjum síðustu mánuði þar sem íbúar í grennd við kísilverksmiðju United Silicon greina frá mengun sem frá henni stafar. Í bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar í gær kemur fram að verksmiðjan hafi verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá verksmiðjunni en mengun sem þessi gangi þvert á forsendur starfsleyfis verksmiðjunnar.

Sjá einnig: Telja nauðsynlegt að stöðva rekstur kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons

„Í ljósi þessa telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta, á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun,“ segir í bókun bæjarráðsins. Undir þetta taka samtökin að hluta.

Stjórn United Silicon telur hinsvegar að stöðvun verksmiðjunnar myndi ekki skila neinum árangri, meðal annars um áframhald rannsókna og hagsmuni kröfuhafa.

„Umhverfisstofnun hafnaði fyrr á þessu ári beiðni United Silicon um 6 mánaða frest (sem senn líður undir lok núna þrátt fyrir að hafa aldrei verið veittur) til að koma mengunarmálum hjá sér í lag. Samtökin mótmæla því að fyrirtækinu verði veittur frekari frestur til rannsókna þar sem ekki liggur fyrir samþykki íbúa um að vera tilraundýr í slíkum rannsóknum. Málið er ósköp einfalt, annað hvort virkar verksmiðjan eða hún virkar ekki, og hefur hún ekki virkað frá því ofninn var ræst í nóvember 2016,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.

Sjá einnig: Stjórn United Silicon segir að stöðvun verksmiðjunnar leysi ekki vandann

Þá segja þau verksmiðjuna vera áhættu kröfuhafa „frá upphafi til enda“ og að þeir beri „ríka samfélagslega ábyrgð í þessu máli,“ eins og það er orðað.

„Stjórn samtakanna skorar á yfirvöld að rekstur United Silicon verði stöðvaður með hagsmuni stórs hluta íbúa Reykjanesbæjar að leiðarljósi svo koma megi í veg fyrir frekari mengun frá United Silicon og frekari skerðingu á lífsgæðum íbúanna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×