Innlent

Ekki gjaldmiðilsskipti í núverandi ríkisstjórn

Sæunn Gísladóttir skrifar
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra. VÍSIR/VILHELM
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir það rétt hjá Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra að það sé skoðun Benedikts og Viðreisnar að hafna beri krónunni. Það sé hins vegar hlutverk stjórnmálamanna að benda á lausnir við vandamálum. Nýr gjaldmiðill er þó ekki á döfinni.

„Ég held að sé mjög ólíklegt að við tökum upp annan gjaldmiðil á tímum þessarar ríkisstjórnar,“ segir Benedikt. „Það er augljóst að það verður ekki breytt um gjaldmiðil nema það eigi sér aðdraganda og aðdragandinn felst meðal annars í því að menn tali um málin.“

Grein Benedikts í Fréttablaðinu á fimmtudaginn þar sem hann ítrekaði afstöðu Viðreisnar um að fundin yrði lausn á gengissveiflum íslensku krónunnar vakti nokkra athygli. Í henni sagði Benedikt Viðreisn hafa verið stofnaða til þess að stuðla að sátt og stöðugleika. Slíkur stöðugleiki náist aldrei nema með stöðugum gjaldmiðli sem standi undir nafni og bjóði upp á svipaða vexti og í nágrannalöndum.

„Það sem hefur gerst að undanförnu er að menn sjá miklar sveiflur á gengi krónunnar á stuttum tíma. Það er auðvitað óheppilegt ástand fyrir fyrirtæki. Ég bendi á það að þetta ástand hefur ekki breyst neitt og við þurfum að vera óhrædd að tala um breytingar,“ segir Benedikt.

Hann segir að í ríkisstjórnarsáttmálanum standi að flokkarnir vilji finna lausn sem dragi úr sveiflum á gengi krónunnar. „Ég hef sagt að þetta gæti gerst í einhverjum áföngum, fyrst gætum við sett okkur markmið þar sem krónunni yrði leyft að sveiflast innan ákveðins ramma og ramminn svo þrengdur.“

Lausnin gæti að mati Benedikts verið myntráð en jafnvel eitthvað annað. „Við eigum að fá tillögur frá nefnd sem er núna að störfum sem hefur þetta markmið að reyna að draga úr sveiflum á gengi krónunnar. Ef menn koma með aðra lausn sem leiðir til annarrar niðurstöðu þá hef ég mjög mikinn áhuga á því að við nýtum okkur hana. En myntráð er ein lausn sem margar þjóðir hafa nýtt sér.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×