Enski boltinn

Kolarov genginn til liðs við Roma

Elías Orri Njarðarson skrifar
Kolarov á ferðinni með Manchester City
Kolarov á ferðinni með Manchester City visir/getty
BBC Sport greinir frá því að Aleksandar Kolarov sem hefur leikið með Manchester City síðan árið 2010 sé genginn til liðs við Roma á Ítalíu.

Kolarov er orðinn 31 árs og hefur leikið 247 leiki fyrir Manchester City. Kaupverðið er talið vera um 4.5 milljónir punda.

Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, er að fá Benjamin Mendy til liðs við félagið og þá var kominn tími á að Kolarov myndi fara annað, augljóst er að spilatími Kolarov myndi minnka til muna ef hann myndi vera áfram hjá félaginu.

Þessi snjalli serbneski bakvörður hefur unnið ensku deildina tvisvar á tíma sínum hjá City, ásamt því að hafa unnið FA-bikarinn og tvo deildarbikara á tíma sínum hjá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×