Erlent

Átta manns fundust látnir í vörubíl í Texas

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla rannsakar málið sem mansal.
Lögregla rannsakar málið sem mansal. Vísir/Getty
Átta manns hafa fundist látnir og tuttugu alvarlega slasaðir í vörubíl í San Antonio í Texas. Bílnum var lagt á bílaplani fyrir utan Walmart-verslun. Frá þessu greinir BNO News á Twitter.

Lögregla í Texas segir í samtali við fréttastöðina að málið snúi að smygli á fólki og að fólkið hafi látið lífið vegna of mikils hita í vörubílnum. Engin loftkæling var í flutningsrými vörubílsins.

BNO News segir frá því að alls hafi rúmlega fimmtíu manns verið í bílnum, þar af tvö börn, þó að óljóst sé hvort á þessari stundu hvort að þau séu í hópi látinna.

Lögregla rannsakar málið sem mansal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×