Körfubolti

ESPN segir Tryggva spennandi kost fyrir NBA-lið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með íslenska landsliðinu.
Tryggvi Snær í leik með íslenska landsliðinu. vísir/ernir
Ítarlega er fjallað um Tryggva Snæ Hlinason á heimasíðu ESPN í dag og hann sagður spennandi kostur fyrir NBA-lið. Tryggvi sló nýlega í gegn á EM U-20 í körfubolta þar sem hann var valinn í úrvalslið mótsins.

Eins og áður hefur verið fjallað um byrjuðu NBA-spekingar að tjá sig um Tryggva á samfélagsmiðlum en greinilegt er að hann hefur fangað athygli vestanhafs með frammistöðu sinni.

Sjá einnig: NBA-njósnararnir farnir að fylgjast vel með Tryggva

Í viðtalinu, sem má sjá hér, er Tryggvi spurður um bakgrunn sinn en eins og frægt er orðið ólst Tryggvi upp á bóndabænum Svartárkoti í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu.

Í greininni er mikið gert úr því að Tryggvi ólst ekki upp við að leika eftir takta Michael Jordan eða LeBron James, raunar kynntist Tryggvi ekki körfubolta fyrr en hann fluttist til Akureyrar fyrir hálfu fjórða ári síðan. Í dag sé hann framtíð íslensks körfubolta.

„Þetta eru aðstæður sem er ekki hægt að útskýra fyrir fólki sem ekki býr á Íslandi eða í þessum landshluta,“ sagði Jón Arnór Stefánsson sem einnig er rætt við í greininni. „Þegar veður er slæmt er í raun ekki hægt að komast þangað eða frá því. Maður er bara fastur þarna. Þetta er einstök saga.“

Tryggvi Snær samdi nýlega við Valencia, gamla félag Jóns Arnórs, en það er spurning hvort að frammistaða hans á EM hafi gert það að verkum að stórlið í Bandaríkjunum muni koma kallandi.

„Hann er óslípaður demantur. Honum eru engin takmörk sett,“ sagði Jón Arnór.

Fram kemur í greininni að Tryggvi Snær hafi skilað tölum á mótinu sem sjaldan hafi sést hjá miðherja á EM U-20 í körfubolta. Tryggvi Snær var með 14 fráköst, þrjú varin skot og tvær stoðsendingar í leik. Aðrir miðherjar sem hafa skilað álíka tölum eru Andris Biedrins og Anzejs Pasecniks sem báðir hafa spilað í NBA-deildinni.

Smelltu hér til að lesa ítarlega umfjöllun um Tryggva Snæ á vefsíðu ESPN.


Tengdar fréttir

Tryggvi í úrvalsliði EM

Tryggvi Snær Hlinason var valinn í fimm manna úrvalslið A-deildar Evrópumóts U-20 ára í körfubolta.

NBA-njósnararnir farnir að fylgjast vel með Tryggva

Íslensku strákarnir í tuttugu ára landsliðinu eru að gera frábæra hluti á Evrópumóti U20 í Grikklandi og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum í dag með sannfærandi sigri á Svíum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×