Lífið

Game of Thrones: Vísir býður á frumsýningu í Smárabíó

Samúel Karl Ólason skrifar
Til að hita upp fyrir nýjustu þættina verður síðasti þáttur sjöttu þáttaraðar sýndur á undan fyrsta þættinum.
Til að hita upp fyrir nýjustu þættina verður síðasti þáttur sjöttu þáttaraðar sýndur á undan fyrsta þættinum.
Vísir ætlar að bjóða tíu lesendum sínum að fara með vini á sérstaka frumsýningu sjöundu þáttaraðar Game of Thrones í Smárabíó á sunnudagskvöldið. Tíu lesendur geta unnið tvo miða á sýninguna.

Til að hita upp fyrir nýjustu þættina verður síðasti þáttur sjöttu þáttaraðar sýndur á undan fyrsta þættinum. Mæting er klukkan ellefu á sunnudagskvöldið og verður nýi þátturinn sýndur klukkan eitt. Þátturinn verður einnig sýndur á Stöð 2 á sama tíma.

Áhorfendur munu geta unnið til vinninga á sýningunni frá Nexus, Viking brugghús, Coca-Cola og Vodafone.

Til þess að eiga tækifæri á því að fá miða þurfa lesendur að skrifa athugasemd hér að neðan og segja hver uppáhalds persóna þeirra er og af hverju. Sigurvegararnir verða valdir klukkan tvö og verða þeir að sækja miða sína í móttöku 365, Skaftahlíð 24, áður en hún lokar klukkan fimm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×