Matur

Í eldhúsi Evu: Laxa tacos

Eva Laufey skrifar
Laxinn tekur sig vel út í skeljunum.
Laxinn tekur sig vel út í skeljunum. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að laxa tacos.

Laxa tacos

600 – 700 g lax, skorinn í litla teninga

2 msk ólífuolía

1 tsk paprikukrydd

1 tsk cumin krydd

salt og pipar, magn eftir smekk

1 hvítlauksrif

Við steikingu:

1 msk ólífuolía

1 límóna

1 msk sesamfræ

Aðferð:

Skerið laxinn í jafn stóra bita, kryddið til með kryddunum sem eru talin upp hér að ofan og bætið olíunni saman við. Rífið niður hvítlauk og bætið honum saman við.

Hitið ólífuolíu á pönnu, steikið fiskinn í nokkrar mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Sáldrið sesamfræjum yfir fiskinn í lokin og kreistið safann úr hálfri límónu yfir fiskinn. 

Blandið laxinum saman við mangósalsa og berið fram í tacoskeljum.



Mangósalsa

1 ferskt mangó í teningum

1 rauðlaukur, meðalstór fínsaxaður

½ agúrka, smátt skorin

½ rauð paprika

1 stór tómatur, fínt skorinn

1 msk fínsaxaður kóríander

safi og rifinn börkur af ½ límónu

1 tsk gróft salt

Ferskmalaður svartur pipar, magn eftir smekk

Aðferð: Skerið hráefnin afar smátt niður og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar og kreistið safann úr límónunni yfir. Geymið salsa í kæli áður en þið berið það fram.

Hitið tacoskeljar í ofni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, þið getið auðvitað notað heilhveitivefjur líka. Berið laxinn fram í tacoskeljum og hellið vel af sósu yfir rétt áður en þið berið skeljarnar fram.



Einföld kóríandersósa

Handfylli kóríander

1-2 msk ólífuolía

Salt og pipar

2 dl sýrður rjómi

Rifinn börkur af ¼ límónu



Aðferð:

Merjið kóríander og ólífuolíu í mortéli eða í matvinnsluvél, blandið kóríanderblöndunni saman við sýrða rjómann og rífið niður börk af límónu. Kryddið til með salti og pipar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×