Glamour

Pils fyrir karlmenn á tískupallinum í París

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hönnuðir í dag setja enn og aftur spurningamerki við staðalímyndir og klæðnað kynjanna. 

Þegar Thom Browne var spurður út í þá hugmynd að setja karlmenn í pils og kjóla, svaraði hann einfaldlega ,,hví ekki?" Innblásturinn af línunni fékk hann frá barnaskóm sem hann fékk í gjöf þegar hann fæddist, kynlausar mokkasíur eins og hann kallaði þær. Hann er auðvitað ekki fyrsti hönnuðurinn sem gerir þetta, en þessi sýning snerist nær eingöngu um karlmannspilsið



Skilaboð hans voru nokkuð einföld. ,,Þegar við vorum börn þá klæddumst við sömu fötum og bræður okkar og systur. Klæðnaður og stíll hvers og eins myndast mikið frá umhverfi og menningu, en væri ekki frábært ef hver og einn gæti valið fyrir sig?" sagði hann í viðtali við Vogue. 



Mestu athyglina fékk flíkin sem voru jakkaföt að framan, en brúðarkjóll að aftan! Skemmtileg sýning og spurning hvort að karlmannspilsið nái fótfestu sem trend ársins 2018?



 






×