Matur

Í eldhúsi Evu: Grilluð eplabaka með karamellusósu

Eva Laufey skrifar
Þessi eplabaka er æðisleg í eftirrétt.
Þessi eplabaka er æðisleg í eftirrétt. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að grillaðri eplaböku með karamellusósu.

Eplabaka

5-6 stór græn epli

2 msk. sykur

2 kanill

1 tsk. vanillusykur eða vanilludropar

50 - 60 g hakkað súkkulaði

Mulningur

80 g. hveiti

80 g. sykur

80 g. smjör

50 g. Kókosmjöl



Aðferð:

Hitið grillið. Flysjið eplin, fjarlægið kjarna og stilka. Skerið eplin í litla bita og dreifið eplabitunum í álform sem má fara á grillið. Blandið sykri, vanillusykri og kanil saman við eplin. Sáldrið súkkulaðinu yfir eplin.

Næsta skref er að útbúa deigið sem fer ofan á eplin.

Setjið hveiti, sykri, smjöri og kókosmjöli í skál og blandið saman með höndunum. Setjið deigið ofan á eplin og grillið í um það bil 10 – 15 mínútur, tekur alls ekki langa stund að grilla kökuna og það þarf að fylgjast vel með henni á grillinu.

Á meðan að kakan er á grillinu er upplagt að útbúa ljúffenga karamellusósu.



Karamellusósa

200 g sykur

2 msk smjör

½ - 1 dl rjómi

½ tsk salt (sjávarsalt er best að mínu mati)



Aðferð:

Setjið sykurinn á pönnu og bræðið hann við vægan hita. Gott er að hafa ekki of háan hita og fara hægt af stað.

Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við og hrærið vel. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er þykk og fín. Í lokin bætið þið saltinu saman við. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×