Glamour

Kidman bar af í Cannes

Nicole Kidman og Keith Urban.
Nicole Kidman og Keith Urban. GLAMOUR/GETTY
Leikkonan geðþekka Nicole Kidman er stödd á kvikmyndahátíðinni í Cannes eins og allar heitustu stjörnurnar í kvikmyndabransanum. Hún er búin að mæta á alls fjórar frumsýningar á hátíðinni, alltaf glæsileg en bar sérstaklega af í gær í hvítum og svörtum kjól úr smiðju Calvin Klein.

Kidman mætti í kjólnum á frumsýningu myndarinnar The Killing of a Sacred Deer en kjóllinn var sérsaumaður fyrir hana. Alls tók um 150 klukkutíma að búa kjólinn til og til þess voru notaðir 164 metrar af silki tjulli. Sjáum kjólaval Kidman á Cannes þetta árið:

Kjóllinn frá Calvin Klein.GLAMOUR/GETTY
Kjóllinn í vinnslu.GLAMOUR/SKJÁSKOT
Kjóll frá Dior CoutureGLAMOUR/GETTY
Nicole Kidman í silfruðum pallíettukjól.GLAMOUR/GETTY
Leikkonan stillir sér upp fyrir ljósmyndara.GLAMOUR/GETTY





×