Glamour

Viðraðu hælana

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sumarskórnir í ár eru lokaðir að framan og opnir að aftan. Á ensku kallast þessi skóstíll "mules" og er helst hægt að lýsa þessum skóbúnaði sem uppfærðri útgáfu af gömlu góðu klossunum.

Þar sem hinir hefðbundnu sandalar henta ekkert sérstaklega vel í íslenskum veðurfari er þessi skóstíll fullkomin, bæði flott að vera í sokkum eða berfættur og smart við bæði kjóla, pils og buxur.

Kíkjum á nokkrar ólíkar týpur með þessu sniði.






×