Glamour

Bella Hadid á forsíðu Vogue í þriðja sinn

Ritstjórn skrifar
Bella er enginn nýgræðingur í tískuheiminum.
Bella er enginn nýgræðingur í tískuheiminum. Mynd/Vogue
Bella Hadid hefur nú landað sinni þriðju Vogue forsíðu á tiltölulega stuttum tíma. Hún sat nýlega fyrir framan á Vogue í París og Japan. Bella situr nú fyrir á forsíðu apríl tölublaðs Vogue í Kína. 

Forsíðuþátturinn, sem er skotinn af Collier Schorr, er fallegur og einlægur. Þar má meðal annars sjá Bellu klæðast Dior, en hún ein af talskonum merkisins. Hún er með lítið af förðun og lítur út fyrir að vera afslöppuð. 

Myndir úr forsíðuþættinum má sjá fyrir neðan. 






×