Innlent

Átta starfsmenn Byko og Húsasmiðjunnar sakfelldir fyrir samráð

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Tveir  voru sýknaðir í málinu.
Tveir voru sýknaðir í málinu. vísir/
Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og sakfelldi átta starfsmenn Byko og Húsasmiðjunnar fyrir verðsamráð og samkeppnislagabrot. Sýknudómur yfir tveimur ákærðu var staðfestur. Dómarnir eru skilorðsbundnir að mestu.

Alls voru tólf ákærðir í málinu en þeir voru sakaðir um að hafa átt í verðsamkeppni til að koma í veg fyrir að Byko, Húsasmiðjan og Úlfurinn ættu í samkeppni. Brotin voru sögð hafa falist í skipulagðri upplýsingagjöf um verð og tilboðskjör sérgreindra grófvörutegunda, einkum bygginga- og timburvara, í símtölum milli starfsmanna fyrirtækjanna sem átti að vera til þess fallin að hafa áhrif á verð, afslætti, álagningu og önnur viðskiptakjör innan umræddra fyrirtækja.

Ellefu þessara manna voru sýknaðir í héraðsdómi í fyrra, en tólfti maðurinn, Steingrímur Birkir Björnsson, fyrrum framkvæmdastjóri fagsölusviðs Byko, var dæmdur í eins mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hann var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Hæstarétti, þar af eru fimmtán þeirra skilorðsbundnir, sem þýðir þriggja mánaða fangelsisvist.

Þá voru Stefán Árni Einarsson, sem var framkvæmdastjóri vörustýringasviðs Húsasmiðjunnar, og Júlíus Þór Sigurþórsson, fyrrum framkvæmdastjóri vörustýringasviðs Húsasmiðjunnar, dæmdir í skilorðsbundið níu mánaða fangelsi.

Kenneth Breiðfjörð, sem var vörustjóri timbursölu Húsasmiðjunnar og Leifur Örn Gunnarsson, sem var verslunarstjóri timbursölu Byko, þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi sem og Stefán Ingi Valsson, fyrrverandi sölustjóri fagsölusviðs Byko. Þeir Guðmundur Loftsson, starfsmaður í þjónustuveri Húsasmiðjunnar, og Ragnar Már Amazeen, starfsmaður í timbursölu Húsasmiðjunnar, voru sakfelldir en refsingu þeirra er frestað og skilorðsbundin til tveggja ára.

Samkvæmt dómnum er refsingu Guðmundar og Ragnars frestað í ljósi þess að þeir voru óbreyttir starfsmenn fyrirtækjanna tveggja og sagðir hafa verið að fylgja fyrirmælum yfirmanna þeirra.

Í tilkynningu sem Byko sendi frá sér segir að niðurstaðan valdi bæði undrun og vonbrigðum.

„Úrskurðurinn sem settur er fram á yfir 50 blaðsíðum virðist vera nýr dómur en ekki endurmat á dómi í héraði. Þessi niðurstaða gengur einnig þvert á anda þeirrar ákvörðunar Áfrýjunarnefndar samkeppnismála að lækka sektargreiðslur Samkeppniseftirlitsins gagnvart BYKO um 90%. Dómurinn er að mati BYKO óskiljanlegur og ekki er ósennilegt að hann verði til þess að auka enn frekar umræður í samfélaginu um vinnubrögð og niðurstöður í Hæstarétti á undanförnum misserum og árum,“ segir í tilkynningunni.

Hér má lesa dóminn í heild.


Tengdar fréttir

Símhlerunum beitt í meintu samráði

Símhlerunum var beitt í tengslum við rannsókn á samkeppnisbrotum Byko og Húsasmiðjunnar en þannig tókst lögreglu að afla mikilvægra sönnunargagna um meint samkeppnisbrot.

Brot Byko alvarleg og ollu almenningi öllum tjóni

Samkeppniseftirlitið sektað Byko í gær um 650 milljónir króna vegna ólöglegs samráðs. Stjórnendur Byko saka Samkeppniseftirlitið um áróður og segja ákvörðunina í andstöðu við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness.

Telur samráðið eiga sér lengri sögu

Samkeppnishamlandi verðþrýstingur byggingarvörufyrirtækjanna Byko og Húsasmiðjunnar neyddi Baldur Björnsson til að loka grófvörudeild Múrbúðarinnar. „Við vorum bara tæklaðir,“ segir Baldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×