Glamour

Christy Turlington Burns á forsíðu Glamour

Ritstjórn skrifar
Glamour/Silja Magg
Ágústblað Glamour er komið út og allir sem hafa eitthvað fylgst með tísku og tímaritum í gegnum tíðina þekkja forsíðufyrirsætuna okkar, sjálf Christy Turlington Burns.

Christy er ein af þekktustu fyrirsætum níunda og tíunda áratugarins. Fyrirsæta sem var í hópi nafna á borð við Naomi Campbell, Lindu Evangelista, Kate Moss og Claudiu Schiffer sem seint gleymast. Þrátt fyrir að vera enn í fremstu röð meðal fyrirsætna í heiminum berst Christy nú fyrir málstað góðgerðafélagsins Every Mother Counts, til að lækka dánartíðni kvenna í fæðingum í heiminum.

Það er sú vinna sem dregur hana til Íslands þennan mánuðinn, en Christy er á leiðinni til landsins ásamt fjölskyldu sinni og teymi sem ætlar að hlaupa Reykjavíkurmaraþonið þann 20.ágúst næstkomandi.

Ferðalag Christy hefst hinsvegar hér í Glamour en við sendum teymi til hennar í New York til að forvitnast um málefnið sem á hug hennar og hjarta, og ætti að skipta okkur öll miklu máli. Góðgerðafélög og starfsemi skipa stóran sess í þessu tölublaði enda getum við öll lagt eitthvað að mörkum í þá áttina.  

Allt um það í nýjasta Glamour en það var Telma Þormarsdóttir sem spjallaði við Christy en Silja Magg á heiðurinn að gullfallegum myndaþætti. 





Myndir/Silja Magg
Allt það nýjasta í heimi förðunar, tísku og lífstíl er einnig á sínum stað eins og venjulega þar sem við færum okkur hægt og rólega inn í haustið. 

Ekki missa af nýjasta Glamour, komið í allar helstu verslanir! 

Tryggðu þér áskrift hér eða með því að senda tölvupóst á glamour@glamour.is!








×