Glamour

Hver er þessi Sofia Richie?

Ritstjórn skrifar
Justin og Sofia hafa verið að stinga saman nefjum seinustu vikuna.
Justin og Sofia hafa verið að stinga saman nefjum seinustu vikuna. Myndir/Getty
Það hefur farið mikið fyrir Sofia Richie í umræðunni seinustu daga eftir að myndir birtust af henni og Justin Bieber vera að leiðast í Japan. Hlutirnir fóru enn meira í háaloft þegar Justin hótaði að gera Instagram aðganginn sinn lokaðan vegna þess að aðdáendur hans voru að tala svo illa um Sofiu í athugasemdakerfinu á Instagram aðgangnum hennar. 

Í kjölfarið hófst stríð á milli Justin og Selena Gomez, fyrrverandi kærustu hans. Hún byrjaði á því að skilja eftir athugasemd á myndinni hans um að hann ætti ekki að vera að pósta myndum af nýju kærustunni ef hann höndlaði ekki gagnrýnina og að það væri aðdáendum hans að þakka að hann væri kominn á þann stað sem hann er í dag. Þá sakaði Justin Selenu um að vera að hafa notað sig fyrir athygli í gegnum tíðina. Dramalætin héldu áfram eftir það en í miðjunni á öllu þessu er Sofia Richie. 

Sofia er dóttir tónlistarmannsins Lionel Richie og starfar sem fyrirsæta. Hún er að vinna að því að gera sína eigin fatalínu en hún segist líta mikið upp til Olsen tvíburana. Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gömul hefur hún náð að skapa sér nafn í Hollywood fyrir einstakan stíl og hún er í einum eftirsóttasta vinahópinum þar í bæ ásamt Kylie Jenner, Bella Hadid, Kendall Jenner og mörgum fleirum. 

Nú þegar allt er í háalofti í kringum hana þá er leiðinlegt að sjá allar ljótu athugasemdirnar á samfélagsmiðlum hjá henni frá alls konar fólki. Á nýjustu myndunum á Instagram síðunni hennar hefur hún látið loka fyrir athugasemdir, sem verður að teljast afar skiljanlegt. 

Sofia er dóttir tónlistarmannsins Lionel Richie.
Sofia er algjör töffari með mikinn áhuga á tísku.
Fyrirsætan unga er þekkt fyrir að vera með flottan stíl.
Sofia var mætt ásamt myndarlegum hóp á Met Gala í ár.

Japan

A photo posted by Sofia Richie (@sofiarichie) on

Mainsqueeze

A photo posted by Sofia Richie (@sofiarichie) on






×