Innlent

Kærð fyrir að greiða barni ekki bætur

SB skrifar
Sif Konráðsdóttir. Starfar nú sem lögfræðingur í Belgíu.
Sif Konráðsdóttir. Starfar nú sem lögfræðingur í Belgíu.

Sif Konráðsdóttir lögfræðingur var kærð til Lögmannafélagsins fyrir að greiða barni, sem hún starfaði sem réttargæslumaður fyrir, ekki bætur. Sif skilaði inn lögmannaréttindum sínum og býr nú í Belgíu. Úrskurðarnefnd Lögmannafélagsins hætti rannsókn á málinu eftir að sættir náðust.

Sif hefur um árabil starfað sem réttargæslumaður barna sem hafa sætt kynferðisbrotum. Börnin eru yfirleitt undir lögaldri þegar þau fá dæmdar bætur og þá fara peningarnir inn á fjárvörslureikning í umsjón lögfræðings eða réttargæslumanns þeirra.

Björn Bergsson, lögfræðingur á Mandat lögmannsstofunni, sá um frágang á bókhaldi og rekstri Sifjar eftir að hún flutti til Belgíu. Hann segir að það hafi verið "róðarí" á rekstrinum.

„Í þessu tiltekna máli var um óffjárráða skjólstæðing hennar að ræða. Bæturnar höfðu verið greiddar inn á fjárvörslureikning. Síðasta haust varð barnið átján ára gamalt og gerði því tilkall til peningana," segir Björn.

Hann segir ættingjana hafa reynt að ná sambandi við Sif en án árangurs. „Þau kærðu hana því til Lögmannafélagsins," segir Björn sem náði sjálfur sambandi við Sif og fékk hana til að senda honum pening sem hann greiddi út til fólksins. Kæran var því á endanum dregin til baka.

Björn tekur fram að þetta hafi hann gert í umboði Sifjar en ekki lögmannsstofunnar sem hafi ekki komið nálægt málinu.

Vísir hafði samband við Martein Másson lögfræðing sem er yfir úrskurðarnefnd Lögmannafélagsins. Hann sagðist ekki getað tjáð sig um einstök mál en sagði að ef sættir náist falli rannsókn nefndarinnar niður.

Ingimar Ingimarsson, framkvæmdastjóri lögmannafélagsins, staðfesti að Sif hefði skilað inn lögmannsréttindum sínum áður en hún flutti til Belgíu.

Upphæðin sem um ræðir er undir einni milljón. Hvorki Björn né aðrir þeir sem Vísir ræddu við vegna málsins gátu staðfest að peningarnir sem Sif millifærði frá Belgíu hafi verið frá henni persónulega eða bæturnar á fjárvörslureikningnum.











Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×