Innlent

Dópaður á stolnum bíl eftir ránsleiðangur í uppsveitum

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn var stöðvaður við Holtsós undir Eyjafjöllum síðastliðinn miðvikudag að því er fram kemur í dagbók lögreglu.
Maðurinn var stöðvaður við Holtsós undir Eyjafjöllum síðastliðinn miðvikudag að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Landakort ehf
Lögreglumenn á Suðurlandi stöðvuðu ökumann sem reyndist vera undir áhrifum áfengis og vímuefna í stolnum bíl sem var þar að auki fullur af þýfi. Þetta átti sér stað á Suðurlandsvegi við Holtsós undir Eyjafjöllum síðastliðinn miðvikudag að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Í bílnum fannst þýfi sem maðurinn hafði tekið ófrjálsri hendi í uppsveitum Árnes- og í Rangárvallasýslu áður en hann var stöðvaður.

Hann gisti fangageymslur á Selfossi til næsta dags enda óviðræðuhæfur vegna ástands síns. Við yfirheyrslur daginn eftir gat hann litlar skýringar gefið á ferðalagi sínu. Bílnum reyndist hann hafa stolið í Reykjavík og númeraplötum í innbroti í tjaldvagnageymslu í Heiðarbæ í Flóahreppi. Á leið þangað hafði hann meðal annars stolið úr bílum ferðamanna við Þingvelli og á Laugarvatni og úr veitingahúsi í uppsveitum.

Þaðan lá leiðin meðal annars í íbúðarhús á Rauðalæk þar sem tölvubúnaði ásamt fleiru var stolið, og í bíl við Seljalandsfoss þar sem greiðslukortum ferðamanna var stolið. Kappinn reyndi svo að nota þau í hraðbanka á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×