Glamour

Hugmyndir fyrir hrekkjavökuna af tískupöllunum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Hrekkjavökubúningurinn getur orðið ansi mikill hausverkur. Hér kemur Glamour til bjargar og gefur þér hugmyndir fyrir hrekkjavökuna beint frá tískupöllunum.

Thom Browne
Þó að það væri erfitt að leika þennan búning eftir Thom Browne þá myndi hann slá í gegn.

Ashish
Er ekki alltaf klassískt að vera norn?

Junya Watanabe
Langir gaddar í hárið og þá er þetta komið!

Moschino
Gangandi blómvöndur.

Dolce & Gabbana
Hjartadrottning!

Yohji Yamamoto
Nú gætirðu skemmt þér og skvett rauðri málningu yfir svartan fatnað. 

Givenchy
Blúndu-gotneskt..? 

Maison Martin Margiela
Ferðamaður í ruglinu, með of mikla yfirvigt






×