Glamour

Naomi Campbell heldur stjörnum prýdda tískusýningu í Cannes

Ritstjórn skrifar
Í góðra vina hópi.
Í góðra vina hópi. Glamour/Getty
Naomi Campbell blés til allsherjar tískusýningu á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum. Viðburðurinn tengist góðgerðasamtökunum Fashion for Relief en fyrirsætan er talskona og upphafskona samtakanna. 

Sýningin þótti einkar vel heppnuð og ekki síst þar sem fyriræturnar voru ekki af verri endanum. Antonio Banderas, Bella Hadid, Kendall Jenner, Natalia Vodianova, Kate Moss og Heidi Klum voru meðal þeirra sem gengu tískupallinn við góðar undirtektir. 

Í tengslum við sýninguna þá frumsýndi Campbell Diesel's Child At Heart línuá pallinum í samvinnu við samtökin en viðburðinn aflaði fjár fyrir Save The Children. Þetta er í tólfta sinn sem Campbell stendur fyrir viðburði á borð við þennan. 

Margir hönnuðir lögðu sýningu lið og mátti sjá glæsilega kjóla og litríkan fatnað. Gaman að sjá kynslóðirnar blandast á tískupallinum. 

 

Mary J Blige
Antonio Banderas.
Faye Dunaway
Heidi Klum.
Bella Hadid





×