Glamour

Anna Wintour á forsíðu Business of Fashion

Ritstjórn skrifar
Flott forsíða á nýjasta tölublaði Business of Fashion.
Flott forsíða á nýjasta tölublaði Business of Fashion.
Anna Wintour, ritstjóri bandaríska Vogue, hefur verið útnefnd áhrifamesta manneskjan í tískuheiminum af Business of Fashion. Hún prýðir forsíðu nýjasta tölublaðsins með krosslagðar hendur fyrir framan bandaríska fánann. Neðst stendur með stórum stöfum 'America'.

Ritstjórinn frægi er klædd í sérsaumaðann Calvin Klein kjól og er að sjálfsögðu með sólgleraugun á sér á myndinni. Í tímaritinu líkja Business of Fashion henni við 'Head of state' hvað varðar bandarískri tísku. 

Fjallað er um stöðu tískufyrirtækja þar í landi, hvernig pólitíkin hefur áhrif og hversu mikilvægt það er að halda uppi fjölbreytninni. Hægt er að lesa meira um efnistök þessa áhugaverða tölublaðs hér. 






×