Fótbolti

Aron skoraði mikilvægt jöfnunarmark Start

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í landsleik.
Aron í landsleik. vísir/epa
Aron Sigurðarson skoraði jöfnunarmark Start er liðið gerði 1-1 jafntefli við Stabæk á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Start eins og FH-ingurinn Kristján Flóki Finnbogason en þeir spiluðu báðir allan leikinn fyrir Start.

Markalaust var í hálfleik en Oi Anthony Omoijuanfo kom Stabæk yfir á 70. mínútu. Tólf mínútum síðar jafnaði Aron svo metin en hann fékk svo gult spjald á 85. mínútu.

Lokatölur 1-1 en Start er enn neðst í töflunni með fjögur stig en þrjú önnur lið eru með fjögur stig eftir leikina sex sem búnir eru. Start er nýliði í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×