Ákæra fyrir kynferðisbrot gefin út á hendur boccia-þjálfara Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa 25. apríl 2018 17:57 Frá lögreglunni á Akureyri. vísir/pjetur Ákæra hefur verið gefin út á hendur boccia-þjálfara á Akureyri fyrir kynferðisbrot gegn iðkenda sínum. RÚV greindi fyrst frá þessu. Samkvæmt frétt RÚV var lögð fram kæra árið 2016 fyrir brot árið 2015. Héraðssaksónari sendi málið aftur í framhaldsrannsókn til lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Embætti héraðssaksóknara staðfesti við Vísi að ákæra fyrir kynferðisbrot hefði verið gefin út og málið sent Héraðsdómi Norðurlands eystra á mánudaginn. Ekki fengust upplýsingar um hvort ákært væri fyrir nauðgun eða annars konar kynferðisbrot. Ákæran hefur ekki verið birt en búið er að tilkynna hana bæði manninum og brotaþolanum. Móðir iðkanda ákærð fyrir líflátshótun Þjálfarinn er ákærður fyrir að hafa brotið gegn konu með þroskaskerðingu en konan var iðkandi hjá honum á þeim tíma. Móðir annars iðkanda sem er einnig þroskaskert hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn þjálfaranum, henni var birt ákæran í síðustu viku. Þegar konan varð þess áskynja í ágúst síðastliðnum að maðurinn var að reyna að setja sig í samband við dóttur hennar brást hún ókvæða við og þusti inn á gólf vinnustaðar hans og hafði í hótunum við hann í vitna viðurvist. Móðirin lýsti furðu og vonbrigðum með að hún væri ákærð á undan manninum sem hefur að hennar sögn gengið laus og haldið uppteknum hætti allt frá því að grunur vaknaði um brot árið 2014. „Þetta eru veruleg vonbrigði og ég var bara slegin þegar mér var tilkynnt um ákæruna,“ sagði móðirin um ákæruna. Útvegaði konunum húsnæði Maðurinn mun hafa stofnað til náinna vináttusambanda við kvenkyns iðkendur í íþróttinni og nýtt sér þær kynferðislega í ljósi þess að hann var í yfirburðastöðu gagnvart þeim. Hann hefur sem dæmi útvegað konunum húsnæði og með því tryggt aðgang sinn að þeim. Maðurinn hefur verið þjálfari á Akureyri í mörg ár og hann er grunaður um að hafa brotið gegn fleiri iðkendum sínum. Hann hefur verið áminntur fyrir óviðeigandi hegðun gegn iðkanda sínum á móti og fékk réttargæslumaður fatlaðra á Akureyri málið inn á sitt borð. Dómsmál Tengdar fréttir Verjandi gagnrýninn á áherslur ákæruvaldsins Verjandi konu sem ákærð er fyrir líflátshótun gegn grunuðum kynferðisbrotamanni, segist vera furðu lostinn yfir áherslum ákæruvaldsins. Maðurinn setti sig í samband við þroskaskerta dóttur hennar en mál gegn honum bíða afgreiðslu. 26. mars 2018 07:00 Ákærð fyrir líflátshótun í garð þjálfara Móðir þroskaskertrar konu hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn boccia-þjálfara dóttur sinnar. Þjálfarinn er grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertum konum sem hann þjálfaði. Mál hans er á borði saksóknara eftir tæplega þriggja ára rannsókn hjá lögreglu. 23. mars 2018 06:00 Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira
Ákæra hefur verið gefin út á hendur boccia-þjálfara á Akureyri fyrir kynferðisbrot gegn iðkenda sínum. RÚV greindi fyrst frá þessu. Samkvæmt frétt RÚV var lögð fram kæra árið 2016 fyrir brot árið 2015. Héraðssaksónari sendi málið aftur í framhaldsrannsókn til lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Embætti héraðssaksóknara staðfesti við Vísi að ákæra fyrir kynferðisbrot hefði verið gefin út og málið sent Héraðsdómi Norðurlands eystra á mánudaginn. Ekki fengust upplýsingar um hvort ákært væri fyrir nauðgun eða annars konar kynferðisbrot. Ákæran hefur ekki verið birt en búið er að tilkynna hana bæði manninum og brotaþolanum. Móðir iðkanda ákærð fyrir líflátshótun Þjálfarinn er ákærður fyrir að hafa brotið gegn konu með þroskaskerðingu en konan var iðkandi hjá honum á þeim tíma. Móðir annars iðkanda sem er einnig þroskaskert hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn þjálfaranum, henni var birt ákæran í síðustu viku. Þegar konan varð þess áskynja í ágúst síðastliðnum að maðurinn var að reyna að setja sig í samband við dóttur hennar brást hún ókvæða við og þusti inn á gólf vinnustaðar hans og hafði í hótunum við hann í vitna viðurvist. Móðirin lýsti furðu og vonbrigðum með að hún væri ákærð á undan manninum sem hefur að hennar sögn gengið laus og haldið uppteknum hætti allt frá því að grunur vaknaði um brot árið 2014. „Þetta eru veruleg vonbrigði og ég var bara slegin þegar mér var tilkynnt um ákæruna,“ sagði móðirin um ákæruna. Útvegaði konunum húsnæði Maðurinn mun hafa stofnað til náinna vináttusambanda við kvenkyns iðkendur í íþróttinni og nýtt sér þær kynferðislega í ljósi þess að hann var í yfirburðastöðu gagnvart þeim. Hann hefur sem dæmi útvegað konunum húsnæði og með því tryggt aðgang sinn að þeim. Maðurinn hefur verið þjálfari á Akureyri í mörg ár og hann er grunaður um að hafa brotið gegn fleiri iðkendum sínum. Hann hefur verið áminntur fyrir óviðeigandi hegðun gegn iðkanda sínum á móti og fékk réttargæslumaður fatlaðra á Akureyri málið inn á sitt borð.
Dómsmál Tengdar fréttir Verjandi gagnrýninn á áherslur ákæruvaldsins Verjandi konu sem ákærð er fyrir líflátshótun gegn grunuðum kynferðisbrotamanni, segist vera furðu lostinn yfir áherslum ákæruvaldsins. Maðurinn setti sig í samband við þroskaskerta dóttur hennar en mál gegn honum bíða afgreiðslu. 26. mars 2018 07:00 Ákærð fyrir líflátshótun í garð þjálfara Móðir þroskaskertrar konu hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn boccia-þjálfara dóttur sinnar. Þjálfarinn er grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertum konum sem hann þjálfaði. Mál hans er á borði saksóknara eftir tæplega þriggja ára rannsókn hjá lögreglu. 23. mars 2018 06:00 Mest lesið Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira
Verjandi gagnrýninn á áherslur ákæruvaldsins Verjandi konu sem ákærð er fyrir líflátshótun gegn grunuðum kynferðisbrotamanni, segist vera furðu lostinn yfir áherslum ákæruvaldsins. Maðurinn setti sig í samband við þroskaskerta dóttur hennar en mál gegn honum bíða afgreiðslu. 26. mars 2018 07:00
Ákærð fyrir líflátshótun í garð þjálfara Móðir þroskaskertrar konu hefur verið ákærð fyrir líflátshótun gegn boccia-þjálfara dóttur sinnar. Þjálfarinn er grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertum konum sem hann þjálfaði. Mál hans er á borði saksóknara eftir tæplega þriggja ára rannsókn hjá lögreglu. 23. mars 2018 06:00